Bloggsvæðið mitt
24.04.2008 23:30:31 / tímon

I am back....

Jæja það er nú eins gott að fara að blogga aftur.  Fyrir þá sem ekki vita þá erum við flutt til "Land hinna ríku".  Held samt að hálf þjóðin sé að fara á hausinn...neinei ekkert svona rugl.  
  Já og ég byrjaði að vinna á Dýraspítalanum í Garðabæ þann 22.janúar og það er BARA gaman.  Sem sagt þá þarft ég að keyra ca.40mín í vinnuna á hverjum degi og tók það nú heldur betur á taugarnar fyrstu 2 vikurnar.  Þá fékk ég að kynnast íslenskum snjóstormi(ekki eins og snjóstormurinn í Danmörku) klikk veður á Kjalarnesi, fór í 42m/sek fyrsta daginn minn í vinnunni.  Dagur 2 - þá kom ég 2tímum of seint ...útaf veðri - allt stopp!!  En svo fór þetta nú batnandi og allt gengur eins og í sögu heee.  Gunni er líka að vinna í RVK og keyrir í gráu þrumunni - hann fékk glænýjan Opel til að keyra á milli og honum er skít sama hvort að bensínið hækki um 1eða 2krónur ...nei það er nú ekki satt!  En hann er voða ánægður í vinnunni, alveg komin á fullt ...vinna ...vinna ..vinna...Hann vinnur hjá RIS(verktakafyritæki) sem Verkefnastjóri.  
  Viktoría er voða ánægð að vera flutt, en auðvitað kemur stundum fyrir að hún sakni Danmerkur - ekki skrítið heldur.  Hún var ekki lengi að eignast vinkonur og komast inní allt í skólanum.  Fékk alveg brilliant einkunn hjá kennaranum, gengur svo vel í skólanum - kennarinn sagðist bara varla trúa því að hún hafi aldrei verið í ísl. skóla.  Já hún er svo dugtig min pige.  Guðlaug Sara er svo hamingjusöm.  Hún á ömmu og afa sem hún sér á hverjum degi, langömmu, frænku og frænda - finnst þetta alveg stórmerkilegt allt saman.  Ánægð í leikskólanum, syngur nýtt lag á hverjum degi og segist vera búin að gleyma hvernig eigi að tala dönsku.  Við tölum nú saman dönsku einu sinni í viku, en þá er hún nú ekki sú málglaðasta í bænum - aðallega Viktoría. 
  Svo fóru Bella og Tímon náttl. í einangrun í 4vikur.  Æ það var voða erfitt að vita af þeim þarna og geta ekki farið bara og náð í þau.  En ég var í góðu sambandi við Siggu, sem var að vinna þarna.  Allt gekk vel og mikið voru þau glöð þegar ég og Viktoría komum og náðum í þau.  Tímon vissi greinilega hver var komin að ná í hann þegar við gengum inn og gjörsamlega trylltist greyjið:lol: Bella var aðeins ruglaðari og horfði smá stund á okkur ..."bíðið við...ég hélt að ég yrði hér til æviloka..þið yfirgáfuð okkur og nú eruð þið komin aftur..." ...svo bilaðist hún alveg og hljóp nærri því alla niður.  Þeir hunda-grétu úr gleði og við líka.   Jæja ekki meira í bili...horfa á Anna Phil ...den danske.    Love you all.    Kveðja Sig.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 23:24:13 / tímon

Jólin nálgast óðum

  Jæja nú fer að styttast til jóla og allir á fullu að senda síðustu pakkana til Íslands.  Skólinn loksins búin og þá get ég aðeins andað réttar.  Nú eru bara nokkur tugi klippinga eftir og þá get ég farið að koma mér í jólgírinn.  Annars verða þetta aðeins öðruvísi jól, þar sem að við verðum á fullu að pakka á milli jóla og nýjárs.  En við erum nú ekki mikið að stressa okkur á þessu - kemur allt saman.  Eða réttara sagt´.....ég er búin með allt stressið mitt heee.  Guðlaug Sara er lasin og við huggum okkur þá daga..enda ekki buin að vera mikill tími fyrir börnin síðustu vikur.  Hún var svo ánægð þegar ég náði í hana í leikskólann í gær...sagði:"jibbí ég er veik og nú fæ ég að koma með þér heim og hugga okkur.  Ég ath. með hvað kostaði að taka bílinn með heim og þeir vilja meina að það sé um kr.150þúsund ...ótrúlegt ...það var ekki mikið.  Þannig að það er spurning að spá aðeins í þessu.  3 búnir að hringja útaf húsinu þannig að ég get aðeins róað mig niður. Þeir koma að skoða á morgun og á föstud og vonandi kemur eitthv. út úr því.  Jæja vá klukkan er bara orðin ansi margt.  Bið að heilsa ..jólakveðjur frá DK.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 18:49:54 / tímon

Nóg að gera hér í Danaveldi

Jæja hér er nóg að gera eins og alltaf.  Skelltum okkur á "gengbrugs"ball - allir fóru að kaupa sér gömul föt.  Held að ég hafi aldrei gert svona góð kaup, keypti mér kjól á 35 dk.  Það var ekki seinna vænna en að halda hér party áður en á ballið yrði farið, og var mikið stuð á Rosengade.  Stemning yfir því líka að allir sem mættu voru í frekar halló fötum og var mikið hlegið þegar hver og einn gekk inn.  Á ballinu var svaka stuð og mikli fúkkalykt heee. 

  Skólanum fer senn að ljúka og eru þá 3 annir búnar af 6, en þær klára ég þegar ég verð 60ára híhí...  Fór á föstudaginn til Köben að tala við hana Hönnu, sem er´dýralæknir á Dýral.stofunni í Garðabæ.  Fyrir þá sem ekki vita, þá er stefnan tekin á Ísland í janúar´08 og byrja ég að vinna á Dýral.stofu þann 21.janúar 2008 jjiiiiiiiiiiiiiiiiiiiibbbbbbbbbbbbbbbíííííííí !!! ..Loksins....loksins...já ég er alveg í sjöunda himni.  Komin s.s með samning um að læra dýrahjúkrunarfræði og byrja í skólanum í jan´09.  Þannig að það er komin timi til að fara að pakka.  Fyrst er að ljúka öllum jólaklippingum, halda jól og síðan pakka draslinu niður og henda í gám!  Við förum í húsið hennar ömmu á Esjubrautina fyrst um sinn, sem betur fer.  Amma er svo svo cool á því að hún er að skella sér til Hawaii þann 14.des og verður fram í mars´08.  Þannig að við fáum að "passa"húsið hennar á meðan.  Jæja nóg í bili þangað til næst. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 22:32:44 / tímon

Er ekki komin tími tíl að rita aðeins á bloggið mitt

Jæja nú er rúmt ár síðan ég bloggaði síðast þannig að ég ákvað að gefa mér tíma til þessa að setjast niður og skrifa nokkur orð.

   Fyrstu snjókornin féllu til jarða nú um kvöldmataleitið hér í Danmörku og Guðlaug Sara hrópaði "já eru jólin að koma".  Sló mig einmitt, já jólin eru á næsta leiti.  Annars er mikið búið að spila af jólalögum hér.  Jóladiskurinn sem að mamma gaf stelpunum síðustu jól er mjög svo vinsæll.  Guðlaug Sara ætlar sko að vera buin að læra öll ísl.jólalögin fyrir jólaballið í ár. 

  Nóg var um að vera um helgina hjá okkur skötuhjúum, þar sem við vorum á spilakvöldi á föstudagskvöldið og síðan var keilukvöld hjá kvennó.  Já það mætti lesa úr þessu að við hjónakornin værum á elliheimili og færum reglulega á spilavist heee.  Nei, nei við erum átta hjón sem erum að spila félagsvist heeeehaaaa tja þetta hljómar nú ekki beint betur en síðustu línur hér á undan...ææ sleppum þessu bara - við erum glötuð heeee.  En ég hristi aðeins upp í mér á laugard.kvöldið og skellti mér með nokkrum "stelpum" í bowling.  Fórum fyrst og fengum okkur að borða og spiluðum svo bowling með miklum tilfæringum.  Hægt að sjá myndir inná www.horsens.dk  og undir myndir.  Síðan skelltum við okkur á pöbbarölt sem var alveg ágætt þar sem maður hefur ekki gert svo mikið af því gegn um árin.  Jæja en ég ætla að taka það fram að ég er nú bara 33ára ekki 73ára heeee.  Varð að skrifa þetta því þetta er alveg hrikalegt að lesa yfir.  Nú fer ég að gera eitthv. í þessum félagsmálum heee. 

  Ég er byrjuð í Rope Yoga tvisvar í viku og er síðan aðra tvo daga í viku í sqassi, þannig að það ætti að leka lýsið.  Rope yoga er alveg frábært, hefði ekki getað trúað því að þetta væri málið!  Gunni er að vinna í Köben og fer á mánud. og kemur aftur á fimmtudögum heim.  Já já þetta er alveg yfirstíganlegt í einhv. tíma. 

  Svo fer nú brátt að ljúka þessari renoveringu á okkar blessaða húsi.  Enda fer þetta að vera asni flott hjá okkur. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 00:11:43 / tímon

Er október hálfnaður..hvað verður um tímann ?????

  Jæja nú er þetta hætt að vera fyndið !  Maður fer að vera of fljótt gamall ef tíminn ætlar ekki að fara að hægja á sér.  En um að gera að njóta lífsins og öllu því sem því sem lífið bíður upp á.  Nú er skólinn komin á fullt og það er svo gaman hjá mér þessa dagana, er alveg að elska þessi sköpunarverk mín ehhe.  Lestin er mikið notuð, jájá á hverjum degi nema á föstudögum þar sem ég á þá frí.  Svo er minn heittelskaði komin frá Íslandi þar sem hann var að hjálpa Ragga bró með húsið hans og Þórnýjar.  Anna Vallý og Emilía Hrönn eru búnar að vera hjá okkur í 3vikur á meðan, og var það alveg meiriháttar að hafa þær.  Gaman að fá að kynnast litlu frænku aðeins, þó að hún hafi nú ekkert verið voða sátt við okkur fyrstu dagana hér. 

    Nú er komið að haustfríi og ætlum við bara að njóta þess fjölskyldan saman.  Maður veit aldrei hvort við skreppum eitthv.  Keyrum nú örugglega einhv. rúnta hér um Jótlandið.  Jæja ekki meira í bili.  Bið að heilsa öllum sem þykja vænt um mig og sem mér þykir vænt um ..kyss og knús. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 23:34:50 / tímon

Hvert á land sem er eftir rétta bílnum sko!

Jæja þá er það Þýskalands ferðin okkar hjóna, til að kaupa draumabílinn !  Lagt var í hann á mánundaginn um kl.19 á svörtu Passat þrumunni.  Gekk það vel að komast af stað og engir stælar í þrumunni.  Keyrðum og keyrðum þangað til að klukkan var orðin 00.30 og var þá langt fyrir utan Motel ca. 30 mín frá Hamborg.  Klukkan 5.30 var bankað á hurðina til að ræsa hjónakornin sem sváfu ansi fast með 4000þúsund evrurnar sínar læstar í Puma veskið sem lá á milli koddana þeirra.  Vá erum við ekki í lagi or what!  En þar sem við erum greinilega ekki í lagi þá komum við okkur á lappir og héldum af stað til morgunverðar.  Áður en lagt var í hann, prófuðum við að sparka aðeins í dekkin á kagganum, þar sem að dempararnir voru farnir og eitthv. meira heheeh.  En allt var á sínum stað og dekkin högguðust ekki, svo áfram var brunað.  6 tíma keyrsla var framundan og þegar á áfangastað yrði komið, þá átti að fara fram skipti á bílum.  Við vorum búin að sigta út dökkbláan Ford Galaxy, og fengum sendar myndir af bílnum- fullt af myndum til að öruggt yrða að allt væri eins og það ætti að vera.  Við vorum svolítið hrædd þegar að hann sagðist heita Muhamed.....já , en nei við treystum manninum 90% .  Næstu 6´tímar í Passatinum á hraðbrautunum í Þýskalandi var HELL.  Í fyrsta lagi keyrðum við á ca.80-90km hraða, því að þegar það komu ójöfnur á veginum þá hoppaði bíllinn svo svakalega að aftan að við hefðum getað farið heljastökk.  Við héldum okkur fyrir aftan trukka því að þá sáum við betur þegar það komu einhv. ójöfnur á veginum - trukkarnir hoppuðu þá aðeins...og við gátum hægt á okkur í tíma.  Í öðru lagi vorum við að skíta í okkur úr hræðslu yfir þessu öllu og bara að bíllinn myndi bila lengst í rassgati einhv. staðar í Þýskalandi - og við vorum ekki með neinn síma sem virkaði þarna, þannig að við hefðum heldur ekki getað hringt í neinn.  Þeir seldu sko ekki símakort í bensínstöðunum og auðvitað vissum við það ekki fyrirfram...fáranlegir þessir þjóðverjar og svo þóttustu þeir enga ensku tala.  Svo í þriðja lagi keyrir maður EKKI á 80km hraða á þýsku hraðbrautunum - prófaðu bara.  Sem betur fer vorum við með GPS tækið hans Jögga í láni, þannig að við fórum ekkert að keyra eitthv. útí buskann.  Jæja mikið stress og þokkaleg hræðsla var í gangi, já sérstaklega  hjá mér - getið ímyndað ykkur.  Eina sem ég hugsaði, hvað það væri gott þegar við værum komin og myndum fá nýja bílinn og bruna af stað HEIM.  Mér fannst við SVO langt í burtu, enda vorum við langt í burtu - vorum alveg við Frönsku landamærin - ca.10 tíma keyrsla frá Danmörku.  Loksins vorum við komin á bílasöluna......já bílasöluna...bílasöluna....þetta var greinilega bílasala því að það voru þarna um 10-12 bílar.  En Guð minn góður!!!  Lítill kofi eða gámur var þarna á svæðinu, eða þessum ÖLLUM 100 fermetrum, og sátu tveir dökkir menn við gamlan trékassa að kjafta.  Mín fékk móðursýkiskast á háu stigi og sagðist ekki fara þarna inná  að skoða bílinn og hvað þá að kaupa bíl af þessum  köllum - öj...þeir væru örugglega einhv. krimmar.  "Viltu koma hérna Gunni, við förum ekki hér inn - löbbum í bensínstöðina fyrst til að sjá aðeins betur þarna inn"  sagði ég ...og byrjaði að fá skjálfta í hnén.  Halló finnst ykkur það skrítið að maður fái bara aðsvif yfir því að sjá þessa hálfgerðu bílasölu, lengt í rassgati og við búin að vera að keyra í 10 tíma á handónýtum bíl, að ná í draumabílinn sem við vorum búin að lyggja yfir á netinu.  Jæja það var annað hvort að hrökkva eða stökkva(vera drepin)hugsaði ég.  Og við ákváðum að hætta á það að vera drepin.  Þarna var bara hálf tyrkja fjölskyldan á svæðinu og allt í einu hoppaði einn þokkalega hommalegur strákur út úr einum pappakassanum þarna, ný búin að þvo sér um hendurnar "sagði hann", og heilsaði okkur með handabakinu - uuuuu reynið bara að ímynda ykkur!  Tja, hér er bílinn.  Það tók ekki langan tíma að sjá að bíllinn var ekki í eins góðu ástandi eins og lýst hafi verið.  Og ekki hafði hann heldur fyrir því að þrífa hann.  Rispur á lakkinu, illa farin að innan og eitthv hafiði hann verið búin að taka í sundur í skottinu en ekkert lagað það aftur.  Við spurðum hvort það hafi ekki verið einn eigandi af bílnum(leit út fyrir að það hefðu verið 100)..."uu hvað var ég búin að segja við ykur?"  Einn sögðum við ...já og einn er það þá.  En þetta gekk ekki upp, þrátt fyrir að við hefðurm viljað óskað þess.  Áfram brunuðum við á svörtu eldingunni, gráti nær - því við vissum að Passatinn hefði það ekki heim.  Klukkan var orðin um 16. og við vorum farin að panika (ég )ehheh...keyrðum um þarna án þess að vita hvert við ættum að fara til að finna bílasölur.  Loksins fundum við nokkur bílaumboð.  Halló...við hlupum um á bílasölunum að finna bíl.ehhehheheh....loksins fundum við bíl og bílasölu sem var reiðubúin að taka svöru eldinguna uppí .  Eftir langa 2 tíma féllust þeir á okkar verð og við keyðum burt á Fiat Marel Station...þokklega betra að keyra hann.  Jæja nú var bara eftir 10 tíma keyrsla heim.  Við vorum bara með 50 evrur á okkur og síðan bara danska peninga.  Tekið var besín fyrir 50 evrurnar og vonandi tæki einvh. bensínstöðin við dönskum peningum.  Neibb..enginn vildi danska....shit hvað gerum við þá?!  Eftir smá tíma og mikið mikið stress hittum við á dani sem voru á ferðalagi og gátu þau skipt fyrir okkur dönskum yfir í evrur.  Og við tókum BENSÍN...jibbí  -  sko það var þvílíkur léttir ...við dönsuðum að kæti - við komumst heim í nótt..jejjeejeej.  Við lögðum okkur í bílnum i 2 tíma, þegar við við vorum búin að keyra frá kl.20. á þriðjud. til 04.00 um morguninn.  Heimkoma var nákvæmlega kl.9.00.  Og mikið var það gott að koma heim!!!  Klippingar og litanir biðu og var dagurinn svolítið lenga að líða svona miðað við þann litla tíma sem ég hafi sofið.  En gott er að geta hlegið af þessari "skemmtilegu" ferð okkar...svona eftir á.   Hilsen Sigrún.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 20:43:45 / tímon

Sól og sumar hér í Danaveldi !

Gott veður er jú hér og vonandi er það ekkert á leiðinni burt.....í gær var svo heitt, um 29 í skugga og 43 gráður í sólinni - og maður var bara steiktur..eins gott að nota sólarvörn í svona hita. Í dag fórum við mæðgurnar og Unnur vinkona Viktoríu á ströndina og sveik það engann...smá gola og bjargaði hún deginum. Fórum síðan og keyptum okkur McDonalds og gúffuðum í okkur. Sú yngsta var sett í sturtu á meðan mamman gekk frá þvotti og öðru skemmtilegu. Síðan var haldið út aftur og plantað rauðu sætu blómunum sem ég keypti í dag...og hef ekki hugmynd um hvað heita - enda skiptir það engu ef þau eru nógu falleg. Gunni er komin á Íslandið og var skellt beint í vinnu þegar á skagann var komið...enda þarf einhv. að vinna á þessu heimili ekki satt ??!! Unnur verður hér eitthv. áfram og eru þær vinkonur að hygge sig. Gott mál....og það er ekkert erfitt að vera svona ein ehhehe...enda ekki alveg ein með öll þessi börn. jæja bara svona smá skot ...njótið sólarinnar...hilsen Sigrún brúna ehhehe...

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 23:17:36 / tímon

Sumarfrí..sumarfrí

    Jæja nú er búið að hygge sig....síðustu vikurnar.  Tengdó voru hér og við fórum öll saman til Svíþjóðar.  Fyrsta alm. útilegan okkar og það var svo frábært.  Við vorum á frábæru tjaldsvæði í Örebro - fimm stjörnu ...og það stóð sko undir því.  Skal ég segja ykkur...það var svo æðislegt veður að við hefðum ekki getað verið heppnari..ca. 30-35stig hiti.  Já ´svo ég gleymi nú ekki....ÉG ER HÆTT Í VINNUNNI...þannig að ég er í extra sumarfríi...heheh.  Gunni er náttl. líka HÆTTUR - BÚIN í skólanum þannig að við eigum loksins sumarfrí saman fjölskyldan.  Við erum bara að njóta þess verð ég að segja.  Viktoría er nu reyndar búin að vera í sveitinni hjá Nine og co. og ætlar að vera í 2 vikur.  Þau eru fólkið sem við fengum Bellu hjá..og eiga 8 ísl. hesta.  Hún elskar þetta sveitalíf og vill helst vera í 30 mánuði ...eins og hún orðaði það hestastelpan okkar heheh.  Búin að detta 2svar af baki í dag...vill bara hleypa hestinum sem hún er á hehehe.  Svo er Gunni nú mjög líklegast að fara til Íslands á mánudaginn eða þriðjudaginn.  Já bara svona allt í einu, hjálpa Ragga með húsið.  Jessss...við sjáum til hvort að húsmóðirin á heimilinu meikar það að vera án eiginmannsins í 2 vikur.. hehe...NOT - eða ég er sko þokkalega búin að kalla út hjálparsveitina frá Íslandi.  Vonandi koma Heiðrún og Viktor Ívan og verða hjá okkur, það yrði rosa gaman.  :lol::lol:

    Veðrið núna er búið að vera rosa milt og gott og held ég að það séð spá hlýnandi.  Svo það er nú ekki hægt að kvarta....ju er virkilega 7 stiga hiti á Íslandi...hjúkk að við flluttum ekki hehehehhe.  Við erum búin að vera að skoða hús...og margoft búin að kaupa nokkur í huganum og láta okkur dreyma.  En í raun þá verðum við að bíða þangað til að Gunni fær vinnu og verður búin að vinna allavegana í einn mánuð...einn mánuð - slepptu okkur með það í bankanum...sögðum að við gætum ekki beðið lengur ehhehe.  Þannig að núna erum við að reyna að róa okkur niður og bíða aðeins með þetta - það er bara svo erfitt þegar að maður er komin af stað daaaaa...  Svo er náttl.búið að skoða bíla jjeeje je..allt í gangi.  Ég vil helst kaupa bíl í gær..you know!!!..en hann maðurinn minn er svo rólegur í svona málum...tja kaupa bara aðeins yngri bíl...getum við ekki bara spurt kallinn hér við hliðina sem á alveg eins gamla druslu og við , nema bara station, um hvort að hann vilji ekki bara skipta?!...Jú, einmitt það sem ég var að hugsa...NOT...mig langar í annan, öðruvísi, fínni, nýrri og fallegri bíl og það strax!!!!! ...heheh.  Þetta kemur allt saman einn daginn...bara róleg.  En allavegana þá eru hlutirnir að ganga upp hér hjá okkur og algerlega nýtt tímabil að ganga í garð.  Vonandi halda hlutirnir að ganga upp.  Bið að heilsa í bili...Sigrún artist.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 20:55:36 / tímon

Íhaaaa....jejejej

  Jæja er allt að ganga upp núna hjá Stúnu og Grunsa ehhehe....já ég er búin að fá inní skóla í Arhus....lista skóla.  Já viti menn ég ætla að gerast listamaður og hana nú !  En annars er allt gott að frétta héðan úr sólinni og hitanum ...annað en þið getir sagt á Íslandi æææ.  Gunni er að fara í atvinnuleit og vonandi kemur eitthv. bitastætt útúr því.  Bið að heilsa.   Sigrún artist.


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 22:31:33 / tímon

Ísland eða Danmörk '???

Jæja nú er búið að taka ákvörðun í stóra Íslands málinu...og viti menn, við ætlum að framlengja dvöl okkar hér í danaveldi.  Og þvílíkur léttir að vera búin að negla þetta.  Gunni er nú búin að ljúka sínu námi og er því orðin byggingafræðingur og vonandi fær hann vinnu  hér sem fyrst í ágúst.  Ég aftur á móti á viku eftir í vinnunni svo tekur vonandi eitthv. skemmtilegt við hjá mér.....tell you later.  Jæja þetta eru fréttirnar núna í dag...see you  æbææbæbæb Sigrún.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 21:13:07 / tímon

Loksins komið sumar

    Jæja loksins komið sumar í danaveldi.  Fyrsti almennilegi sólardagurinn lét sjá sig á sunnudaginn og náði ég að brenna þokkalega...en náði mér á strik daginn eftir ehhe.  En ég er búin að vera í löngu fríi og það er yndislegt, tengdó komu á laugardaginn og held að þeim líki bara ágætlega hjá okkur.  Fórum smá rúnt til Vejle í gær og fengum okkur ís og pylsu, í dag fórum við síðan í bæinn þar sem að afi hennar Viktoríu var búin að lofa henni buxum..gekk það bara vel og fékk prinsessan tvennar af því að hún gat ómögulega valið á milli hehe.  En veðrið ....ææææ veðrið er æði þessa dagana, og hef ég ákv. að lyggja aðeins á morgun í sólinni og fá smá brúnku.  Nú eru bara 4 vikur eftir í vinnunni og er það svolítið skrítin tilhugsun ??? 

  Kvennahlaupið er á laugardaginn hér í Mosanum og auðvitað hleypur maður eins og brjálaðingur, þar sem ég er nú farin að taka aðeins í hlaup ehhe...ju alveg satt - nú stefni ég á að vera hlaupagarpur mikill.  No..no..svo er stóri afmælisdagurinn á sunnudaginn...ju þá verð ég 32 ára ..jevræt hahaha.  Og á laugardaginn ætla ég á ísl.ball hér í Horsens, Gunni verður heima því hann er að einbeita sér að prófdeginum stóra. 

  Jæja ég er alveg tóm eitthv. núna svo ég ætla að segja bless.  Njótið augnabliksins !


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 20:39:57 / tímon

Tíminn flýgur hratt...allt of hratt

 Jæja ótrúlegt en satt þá fer að slefa í 4 árin hér í danaveldi, og mjög erfitt hefur verið að taka ákvörðun um hvort við eigum að vera hér eða flytja til Íslands.  EN..undirbúningur vegna flutnings er hafin - já viti menn þegar ákvörðun er tekin þá er ekkert aftur snúið.  Við flytjum í byrjun ágúst....dagsetning er ekki alveg ákveðin, því það er bara rosa erfitt mál SKO!  OOOOO...það er yfirleitt svo geggjað veður í´ágúst hér í draumalandi ehhe..neeeijjjj við förum líklegast í kringum 10.ágúst.  Hundarnir ...já blessuðu hundarnir fara með flugi 15.júlí og koma úr einangrun þann 15.ágúst - flottur tími.  Hélt að það yrði meiri gestagangur svona síðasta sumarið, en viti menn það vill greinilega engin heimsækja okkur - það er líka bara ágætt því við viljum ekkert sytja uppi með einhv. gesti í allt sumar.  Hehhehe....gott mál. 

  Tengdó eru að koma á laugard.3.júní og auðvitað ætla þau að vera yfir útskriftina hjá Gunnsa litla þann 30.júní.  Kallinn útskrifast sem byggingafræðingur héðan úr Tækniháskólanum við Vitus Bering...jahérna gat ég haft þetta eitthv. flottara ehhe.  En þau ætla að stoppa í 5 vikur og ætlum við að reyna að flakka svolítið um hér á Jótlandinu.  Mamma og pabbi voru nú eitthv. að spá í að láta sjá sig núna á laugardaginn...en....það kemur í ljós á morgun.  Annars ætla þau að koma í júlí og ef ég þekki móðir mína rétt þá stoppar hún nú í einhv. tíma.  Já, já auðvitað á að reyna að ferðast eitthv. meira.  Allt á fullu áður en við flytjum aftur á litlu eyjuna þar sem allir eru svo cool. 

  Við fengum heimsókn í dag frá henni Nine og einni vinkonu hennar, Nine er konan sem við fengum Bellu hjá.  Ég var að vinna til kl.18.ídag og ákvað þá að ná í McDonalds fyrir okkur.  Keypti síðan tvo auka borgara ef þær vildu Nine og Birthe.  Þær birtust rétt á eftir mér og bauð ég þeim borgara.....já einmitt.....Viktoría og Gunni voru búin með sína tvöföldu borgar og voru byrjuð og búin með þeirra - Gunni hélt að ég hafi keypt extra tvo bara sísvona...já þið fáið því enga hamborgar - Gunni var bara heppin í þetta sinn þar sem ég ákvað að hlífa honum á meðan þær sátu vonsviknar inní stofu og borðuðu ananas...FRÁBÆRT!!!    Þrátt fyrir þessi svik bauð Nine Viktoríu að koma og vera hjá þeim alla helgina.  Mín var að tapa sér úr spenningi og gat varla beðið eftir að fara í sveitina.  Nine og fjölsk. eiga 6 íslenska hesta og eru nýbúin að fá 2 folöld sem Viktoría er svo spennt að sjá.  Svo hún verður á hestbaki alla helgina - get ekki annað sagt en að ég öfundi hana smá.  Gunni er alltaf á fullu í skólanum enda stutt í prófin, þann 20.júní.  Og nú eru bara 5 vikur í það að ég hætti í vinnunni...vá mann.  Svo fær maður bara sumarfrí á launum og vonandi fæ ég gott frí ...sól og sæla. 

      En nóg í bili héðan úr Hrossanesi.    mmmm...kann ekki að setja inn myndir !


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 19:29:15 / tímon

Á Íslandi

  Er á Íslandi núna og erum við stelpurnar búnar að vera í viku hér á klakanum.  Ekki er þetta skemmtiferð í þetta skiptið, þar sem ég kom til lands vegna láts afa míns. Hann var jarðsetin á mánudaginn og var athöfinin mjög falleg. 

  Annars er þetta búin að vera voða fljótt að líða eins og alltaf þegar maður kemur hingað í heimsókn.  Maður er líka hálf rótlaus og er svona að reyna að heimsækja alla þá sem maður þekkir - næst ætla ég að auglýsa þegar við komum og allir þeir sem vilja hitta okkur, koma í heimsókn til okkar ...einhv.staðar ehhe.  Er ekki í miklu blogg stuði svo ég kveð að sinni.  Hilsen S.B


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 20:48:39 / tímon

Frábær byrjun á góðum degi...

  Langt síðan ég hef bloggað..ójá.  En dagurinn hjá mér byrjaði ansi skemmtilega.  Gunni fór í ræktina kl.9 og við mæðgurnar héldum áfram að láta okkur líða vel undir heitri sænginni.  Stuttu seinna skreið eldri dóttirin framúr og ekki leið á löngu þar til sú yngri fór á eftir.  Viktoría fór að leika inní herbergi með hestana sína og Guðlaug Sara var að kubba inní herberginu sínu...mig langaði að lyggja aðeins lengur og gerði það, með annað augað opið ehhe.  Vitandi það að Gunni fór með hvolpinn okkar hana Bellu út í morgun áður en hann fór, var ég nú bara róleg...svo ekki þurfti hún að fara út að gera sitt.  Nei..nei..viti menn !  Viktoría sagði sallaróleg.."nei..mamma, Bella er búin að kúka hér inni ojj.."  Auðvitað hélt ég að hún væri þá að djóka og setti sængina betur ofan á mig.  Guðlaug Sara kom hlaupandi inní herbergið ..."mamma, mamma...hún er búin að kúka á kubbnana mína" !!!!  Ég var ekki eina sekúndu fram og viti menn...mín versta martröð varð að veruleika.  Okkar yndilsegi hvolpur var búin að drulla svo inní herbergi hjá Guðlaugu Söru, og hefur þarað auki labbað svona hring um herbergið og skitið you know... svo labbað ofan í öll herlegheitin og þið getið ímyndað ykkur restina ...ekki satt ?!!!  Ég stóð á ganginum og mig langaði mest að fara að grenja...stelpurnar stóðu inná baði ásamt Bellu kúkalabba og þorðu hvorki að hreyfa legg né lið..störðu bara á mig og sögðu ekki orð.  Ég vissi ekki á hverju ég átti að byrja...taka skítinn...þvo lappirnar á Bellu..eða hlaupa út.  Ég er sko að tala um 35kg. hund, þannig að þið fáið líka að ímynda ykkur hvað svona hundur skítur miklu ehhe.  Já já ég get alveg hlegið af þessu núna, en það var ekki gaman að byrja daginn á svona "skítareddingum".  Reyndar fékk húsbóndinn að skrúbba teppið, svona bara til að taka þátt í heimilsverkunum.  En svona er lífið stundum þegar að maður á hvolp!  En annars var dagurinn bara ágætur, ég og Guðlaug Sara fórum í göngutúr í pollagallanum með hundana í alveg frábæru veðri.  Viktoría var að venju úti að leika sér. 

  Það gengur bara fínt í þeim danska...búin að tapa 2,8kg á 4 vikum..en ég verð að fara að taka mig á til að missa 1kg. á viku.  Gunni er búin að vera rosa duglegur og tapa 2,5kg. á 2 vikum.  Þetta verður orðið fínt hjá okkur í sumar mann ehhehe.  Jæja bið að heilsa.  Love you all.  Sigrún danske


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 14:44:30 / tímon

Danmörk my ass....

  Jæja enn eru smá leifar að sjó hér í danaveldi og vonandi fer allt að verða autt.  Ekki eins og á Íslandi, rigning og rok.  Nei, nei enga svoleiðis vitleysu hér - nú fer brátt að hlýna (vonandi) og vorið fer að banka á dyrnar.  Mig hlakkar svo mikið til þegar það fer að vera sól og hiti, fara í alla skemmtigarðana, ströndina, borða úti úúúúú....það verður geðveikt.  Heeee....ég er einmitt í fríi í vinnunni í dag og viti menn, ég sit hér og læt mig bara dreyma..eins og kannski sést hér á skrifunum mínum.  Bæ.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2